|
Föstudagur 23.07.2004 Sumarfrí Vefsetrið er ennþá í sumarfríi en rétt er að taka fram að frekari línuskautaæfingum er hér með frestað til hausts.
Fimmtudagur 24.06.2004 Sumarfrí Þangað til annað kemur í ljós er þetta vefsetur í sumarfríi. Minnt er á línuskautaæfingar á fimmtudagskvöldum í sumar.
Fimmtudagur 13.05.2004 Lokahóf 2004 Lokahóf skíðadeildar Mývetnings verður haldið við Reykjahlíðarskóla laugardaginn 22. maí 2004 kl. 16:00. Farið verður í leiki og allir fá grillaðar pylsur.
Sumaræfingar 2004 Í sumar verða vikulegar línuskautaæfingar í “brekkunni” í Birkihrauni. Tímasetning verður auglýst í sumaræfingatöflu Mývetnings.
Laugardagur 01.05.2004 Uppskeruhátíð 2004 Verðlaunaafhending fyrir héraðsmót vetrarins á skíðum verður á Húsavík sunnudaginn 9. maí 2004.
Ætlunin er að fara fyrst í sund (kostar kr. 100), mæting við sundlaugina á Húsavík kl. 16:00.
Að sundinu loknu verður grillveisla og auðvitað verðlaunaafhendingin. Allir keppendur fá verðlaunapening.
Sumaræfingar 2004 Í sumar verða vikulegar línuskautaæfingar í “brekkunni” í Birkihrauni. Tímasetning verður auglýst í sumaræfingatöflu Mývetnings.
Þriðjudagur 27.04.2004 Nú er líklega óhætt að afskrifa frekari skíðaæfingar þennan veturinn. Eins og sjá má af myndum vefmyndavélarinnar er skíðafærið orðið frekar dapurt(!).
Þeir sem ennþá eiga búnað í skíðageymslunni eða lyftuhúsinu eru beðnir um að fjarlægja hann sem fyrst. (Búnaður sem skilinn var eftir í fyrra var músétinn og stórskemmdur þegar að var komið í haust.)
Andrésar Andar leikarnir 2004 Mývetningar stóðu sig vel á Andrésar Andar leikunum, hvort heldur sem var í brekkunum eða í hávaðakeppni í Íþróttahöllinni. Nokkrir Mývetningar náðu á pall og allir skemmtu sér vel þegar upp var staðið.
Um úrslit má lesa í blaði sem hægt er að nálgast hjá Karli E. Sveinssyni en hann lumar einnig á Skíðablaðinu sem og dótapoka fyrir keppendur (þá sem ekki hafa þegar fengið hann afhentan).
Uppskeruhátíð 2004 Verðlaunaafhending fyrir héraðsmót vetrarins verður á Húsavík innan tíðar. Nánari tilhögun verður auglýst hér þegar nær dregur.
Sumaræfingar 2004 Í sumar verða vikulegar línuskautaæfingar í “brekkunni” í Birkihrauni. Tímasetning verður auglýst í sumaræfingatöflu Mývetnings.
Þriðjudagur 20.04.2004 Athugið að það verður straujað undir skíði eftir mótssetningu á miðvikudagskvöld og að lokinni verðlaunaafhendingu á fimmtudags- og föstudagskvöld. Foreldrar komi með skíðin á VSA, Gránufélagsgötu 47.
Pizzuveislan á Greifanum á fimmtudag kostar kr. 950 á mann. Innifalið er pizza, franskar, brauðstangir og gos.
Þá barst eftirfarandi frá Andrésar Andarnefndinni: Til að fyrirbyggja hugsanlegan misskilning vill Andrésar Andar nefndin taka fram að útbúnaðarreglur í alpagreinum á Andrésar Andar leikunum 2004 eru frjálsar, nema skylt er að hafa hjálm.
Það er vert að minna á að til eru nokkrir hjálmar í öllum stærðum og upplagt fyrir þá fullorðnu að sýna gott fordæmi og mæta með hjálm á leikana. Karl E. Sveinsson veitir allar nánari upplýsingar.
Mánudagur 19.04.2004 Athugið að það var villa í dagskránni sem okkur barst á föstudaginn. Keppni í stórsvigi 7 ára fer fram kl. 10:00 á laugardaginn en ekki kl. 13:30.
Munið aukaæfinguna í dag á “þriðjudagstíma”.
Sunnudagur 18.04.2004 Nú er búið að bæta inn á dagskrá 29. Andrésar Andarleikanna hér á síðunni nokkrum atriðum sem sérstaklega snúa að keppendum Mývetnings.
Föstudagur 16.04.2004 Í dag barst endurskoðuð dagskrá 29. Andrésar Andarleikanna, foreldrum er bent á að kynna sér hana vel. Þá stendur til að útbúa “símaskrá” fyrir þá foreldra sem verða á leikunum. Vinsamlega sendið vefritara upplýsingar um þau símanúmer sem þið viljið hafa með.
Æfingar verða að venju alla helgina og svo verður aukaæfing á mánudaginn, 19.04.2004 á “þriðjudagstíma”, þ.e. yngri kl. 17:00 - 18:00 og eldri kl. 18:00 - 19:30.
Fimmtudagur 15.04.2004 Nú eru Andrésar Andarleikarnir rétt handan við hornið og ekki seinna vænna en að huga að undirbúningi og gistingu. Eftirfarandi tilboð barst frá Keahótel ehf.: “Verðið er 11.900,- kr pr mann. Innifalið að venju gisting í þrjár nætur , þrír morgunverðir og þrír kvöldverðir. :. Tilboðið miðast við að 3-4 gisti í hverju herbergi og hluti hópsins komi með svefnpoka og fái dýnur hjá hótelinu.”
Þeir sem hafa áhuga á þessu tilboði hafi samband við Valda hið fyrsta.
Þeir sem eiga leið til Akureyrar og koma því við ættu kannski að hafa skíðin með og skreppa í fjallið. Það væri góður undirbúningur fyrir krakkana, sérstaklega þá sem ekki hafa farið í Hlíðarfjall áður.
Mánudagur 12.04.2004 Héraðsmót HSÞ í stórsvigi var haldið í dag á skíðasvæðinu við Kröflu. Keppendur voru 40 auk 7 gesta frá Austra og Haukum. Þrátt fyrir fremur erfiðar aðstæður gekk keppnishald ágætlega og úrslit tvísýn í sumum flokkum. Keppendum er þökkuð þátttakan og gestum sérstaklega þakkað fyrir komuna.
Þriðjudagur 06.04.2004 Héraðsmót HSÞ í stórsvigi verður haldið á skíðasvæðinu við Kröflu mánudaginn 12.04.2004, annan í páskum. Brautarskoðun verður kl. 11:30 en mótið hefst kl. 12:00. Keppt verður í öllum aldursflokkum.
Annars verður skíðasvæðið opið skv. stundaskrá um páskana. Lyftugjald (pr. dag) er kr. 250 fyrir 16 ára og eldri, kr. 100 fyrir þá sem yngri eru.
Sunnudagur 04.04.2004 Vefritari auglýsir hér með og óskar eftir myndum og frásögnum af skíðakeppnisferð sem farin var í Skagafjörð í gær.
Vinsamlega sendið ekki mjög stórar myndir í tölvupósti, helst ekki mikið stærri en 100Kb. Hafið samband við vefstjóra varðandi eftirvinnslu mynda ef á þarf að halda.
Mánudagur 29.03.2004 Skíðakeppnisferð í Skagafjörð Til stendur að fara í skíðaferðalag laugardaginn 3. apríl 2004. Skíðadeild Hauka heldur innanfélagsmót á skíðasvæði Tindastóls og okkur er boðið að taka þátt.
Farið verður með rútu kl. 7:30 frá Strax og komið heim um kvöldið. Kostnaður verður líklega á bilinu frá kr. 1.500 til kr. 2.000 á mann. Ætlast er til að hver komi með nesti fyrir sig. Reiknað er með að koma öllum búnaði fyrir í rútunni á föstudagskvöldið, það verður auglýst nánar síðar.
Þeir sem ætla að fara með eru beðnir að láta Valda vita ekki síðar en miðvikudaginn 31. mars 2004. Þeir sem vita af ferðinni eru beðnir um að segja þeim frá sem mögulega vita ekki af henni.
Þriðjudagur 23.03.2004 Nú styttist í 29. Andrésar Andarleikana en þeir verða haldnir í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 21. - 24. apríl 2004. Nú er bara að vona að nýja sendingin af skíðasnjó verði ekki “uppseld” þegar þar að kemur!
Sunnudagur 20.03.2004 Nú eru myndir frá verðlaunaafhendingu Guffaleikanna komnar inn. Myndirnar af krökkunum þar sem þau renna sér í gegnum endamarkið eru líka komnar inn. Vinsamlega látið vefstjóra vita ef einhverjar myndir eru rangt merktar.
Sunnudagur 20.03.2004 Um næstu helgi (27. og 28. mars 2004) verður haldið skíðamót á skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal. Keppt verður í svigi og stórsvigi í aldursflokkunum 9 - 10 ára og 11 - 12 ára. Svefnpokagisting (m/dýnu), lyftugjöld og 1 sundmiði kosta kr. 2.500, þátttökugjaldið er að auki kr. 500. Þeir/þær sem hafa áhuga á að taka þátt hafi samband við Valda ekki síðar en miðvikudagskvöldið 24. mars 2004.
Sunnudagur 20.03.2004 Nú eru myndir frá verðlaunaafhendingu Guffaleikanna komnar inn. Myndirnar af krökkunum þar sem þau renna sér í gegnum endamarkið eru líka komnar inn. Vinsamlega látið vefstjóra vita ef einhverjar myndir eru rangt merktar.
Laugardagur 20.03.2004 Guffaleikarnir 2004 voru haldnir í gær við ágætar aðstæður. Keppnin var spennandi og úrslit í sumum flokkum tvísýn.
Þriðjudagur 16.03.2004 Verðlaunahafar á Guffaleikunum í fyrra eru beðnir um að koma með verðlaunagripina með sér á föstudaginn eða koma þeim til Krissa, Stjána eða Kalla fyrir þann tíma.
Sunnudagur 14.03.2004 Héraðsmót HSÞ var haldið í dag og voru úrslitin tvísýn í sumum aldursflokkum. Þannig munaði t.d. aðeins 26/100 á 1. og 2. sæti í flokki 9 ára stúlkna. Í 4 öðrum flokkum var munurinn á 1. og 2. sæti innan við 1 sekúnda.
Miðvikudagur 10.03.2004 Héraðsmót HSÞ verður haldið sunnudaginn 14. mars 2004 kl. 12:00.
Miðvikudagur 03.03.2004 Nú er búið að setja byrjendanámskeiðið inn á stundaskrána (ekki seinna vænna!). Athugið að á föstudögum færast aðrar æfingar aftur um hálftíma frá því sem upphaflega var.
Guffaleikarnir verða haldnir föstudaginn 19. mars 2004 kl. 14:00. Að vanda verður keppt í fimm aldursflokkum barna auk tveggja aldursflokka fullorðinna.
Mánudagur 01.03.2004 Nú er vefmyndavélin komin á endanlegan stað í glugganum. Að auki sést hér hægra megin á forsíðunni lítil útgáfa af nýjustu myndinni. Hægt er að smella á hana og opnast þá síðan með myndinni í fullri stærð. Þá er síðan sem sýnir 10 síðustu myndirnar komin aftur.
Að lokum má geta þess að síðan sem áður sýndi veðrið síðustu 10 mínútur sýnir nú veður síðustu 58 mínútna.
Laugardagur 28.02.2004 Í dag var bjart og gott veður, dálítill mótvindur um tíma en færið þokkalegt miðað við hitastig.
Fyrsta myndaalbúm vetrarins er komið inn, þau verða vonandi miklu fleiri.
Þá er vefmyndavélin loksins komin af stað aftur þótt hún sé ekki komin á endanlegan stað í glugganum.
Fimmtudagur 19.02.2004 Myndavélin sem auglýst var í fyrradag er komin til síns heima.
Vefmyndavélin hefur verið fjarlægð úr lyftuhúsinu og verður ekki reynt að nota hana meira. Myndavélin sjálf var hin ágætasta en hugbúnaðurinn sem fylgdi réði ekki við aðstæður, enda hannaður fyrir innanhússnot eingöngu.
Vonir standa til að myndavélin sem notuð var í fyrra og reyndist vel verði sett upp aftur á næstu dögum.
Þriðjudagur 17.02.2004 Í dag var hart færi og gott rennsli en helst til mikill mótvindur.
Myndavél í óskilum Að loknum æfingum í dag (þriðjudag) fannst myndavél í lyftuhúsinu. Eigandi vinsamlega hafi samband við Þorvald þjálfara í síma 464 4128.
Foreldravakt Ein beiðni hefur borist um breytingu á foreldravaktinni. Breytingin verður sett inn á morgun, miðvikudag og hefur áhrif strax um helgina. Þeim sem breytingin varðar verður sendur tölvupóstur.
Veður Tilraun með að sýna þróun veðurs síðustu 60 mínútur í stað síðustu 10 mínútna virðist gefa góða raun og verður að líkindum að varanlegri breytingu. Reyndar sjást aðeins síðustu 58 mínútur, að því er virðist vegna takmörkunar í veðurstöðvarforritinu.
Miðvikudagur 11.02.2004 Athugið að fimmtudagsæfingin fellur niður vegna þorrablóts í grunnskólanum.
Á föstudaginn hefst byrjendanámskeiðið kl. 14:00 og stendur í klukkustund. Æfingar færast því aftur um hálfa klukkustund, til kl. 15:00 og 16:00.
Byrjendanámskeiðið verður kl. 12:00 - 13:00 á laugardag og sunnudag.
Vinsamlega athugið lítillega breytta útgáfa af foreldravaktinni. Hún er nú að auki merkt með útgáfunúmeri og dagsetningu til frekari glöggvunar.
Þá er verið að gera tilraun með að sýna þróun veðurs síðustu 60 mínútna í stað síðustu 10 mínútna.
Að lokum má taka fram að ekki hefur enn tekist að stilla vefmyndavélina nógu vel til að hægt sé að birta myndirnar á vefnum. Þó er ekki fullreynt ennþá.
Mánudagur 09.02.2004 OPIÐ kl. 17:00 - 19:00 í dag vegna veðurs og færis - nýtroðnar brekkur.
Sunnudagur 08.02.2004 LOKAÐ í dag vegna ófærðar.
Vinsamlega athugið nýja útgáfa af foreldravaktinni þar sem reynt hefur verið að koma til móts við óskir foreldra.
Einnig er minnt á breytta æfingatíma á þriðjudögum og fimmtudögum.
Laugardagur 07.02.2004 LOKAÐ í dag vegna veðurs og ófærðar.
Þriðjudagur 03.02.2004 LOKAÐ í dag vegna veðurs.
Mánudagur 02.02.2004 Á foreldrafundi sem haldinn var í kvöld var ákveðið að breyta lítillega tímasetningu æfinga á þriðjudögum og fimmtudögum.
Á þriðjudögum styttist æfing yngri hóps um hálftíma og æfing eldri hóps færist fram um klukkustund eða til kl. 18:00. Hálftíma hlé sem var á milli æfinganna leggst af. Á fimmtudögum færist æfing eldri hóps aftur um hálftíma til kl. 17:30.
Byrjendanámskeið Námskeið fyrir byrjendur á skíðum hefst föstudaginn 6. febrúar kl. 13:30 og verður fram haldið sunnudaginn 8. febrúar kl. 12:00. Tímasetning helgina 14. - 15. febrúar verður staðfest síðar en verður líklega kl. 12:00 báða dagana.
Námskeiðið stendur í klukkustund í hvert sinn og fer fram við skíðalyftuna við Kröflu.
Þeir sem hafa áhuga á að byrja en hafa ekki mætt á skíði í vetur eru beðnir um að láta vita af sér fyrir föstudag. Þorvaldur þjálfara tekur við skráningum og veitir frekari upplýsingar í síma 464 4128.
Allir velkomnir, engin aldurstakmörk!
Fimmtudagur 29.01.2004 LOKAÐ í dag vegna veðurs.
Foreldrafundur verður haldinn í mötuneyti Kísiliðjunnar mánudaginn 2. febrúar 2004 kl. 20:00.
Laugardagur 24.01.2004 LOKAÐ í dag vegna hvassviðris.
Fimmtudagur 22.01.2004 Nú er búið að setja upp foreldravakt fram á vor. Þangað til annað kemur í ljós munum við halda okkur við þessa útgáfu.
Nú virðist fínstilling vefmyndavélarhugbúnaðarins farin að skila árangri og myndirnar eru ekki lengur yfirlýstar yfir daginn. Nú er einnig hægt að sjá “myndasöguna”, þ.e. 10 síðustu myndirnar.
Nú styttist einnig í það að hér til hægri á forsíðunni birtist stutt skilaboð frá þjálfara og/eða “snjótroðurunum”, t.d. um færi dagsins.
Laugardagur 17.01.2004 LOKAÐ í dag vegna veðurs.
Fimmtudagur 15.01.2004 Það verður ekki annað séð en að búið sé að troða og varla vantar snjóinn! Nú eru allir hvattir til að skella sér á skíði - bara klæða sig vel því það er dálítið frost.
Þriðjudagur 13.01.2004 LOKAÐ í dag vegna veðurs.
Sunnudagur 11.01.2004 LOKAÐ það sem eftir er í dag vegna veðurs.
Laugardagur 10.01.2004 Í dag var rennifæri í nýtroðnum brekkum og þeir sem skelltu sér á skíði skemmtu sér vel í góðu veðri.
Nú stendur til að panta hjálma fyrir börn og fullorðna og eru ALLIR hvattir til þess að eignast slíkt öryggistæki.
Lyftugjöld hafa verið ákveðin fyrir tímabilið og þurfa þeir sem ekki greiða æfingagjöld að greiða sitt lyftugjald.
Byrjendanámskeið hefst 20. janúar 2004.
Föstudagur 09.01.2004 Í dag var blautt og þungt færi en þrátt fyrir það mætti dágóður hópur á óformlega æfingu í rigningunni.
Nokkur umræða hefur orðið um notkun hjálma á skíðasvæðinu. Það er skylda að nota hjálm á æfingum og því betur nota flestir krakkanna hjálm utan æfinga líka.
Því er hins vegar öðruvísi farið hjá fullorðna fólkinu, í þeim hópi heyrir notkun hjálma til undantekninga. Það er umhugsunarefni hvort það telst góð fyrirmynd. Eins og nýlegt dæmi sýnir getur það líka komið sér vel fyrir fullorðna að nota hjálm.
Nú stendur til að panta hjálma fyrir börn og fullorðna og eru ALLIR hvattir til þess að eignast slíkt öryggistæki.
Lyftugjöld hafa verið ákveðin fyrir tímabilið og þurfa þeir sem ekki greiða æfingagjöld að greiða sitt lyftugjald.
Byrjendanámskeið hefst 20. janúar 2004.
Föstudagur 09.01.2004 Lyftugjöld í vetur hafa verið ákveðin eftirfarandi:
Daggjald 16 ára og eldri kr. 250,- Daggjald yngri en 16 ára kr. 100,-
Árskort 16 ára og eldri kr. 2.500,- Árskort yngri en 16 ára kr. 1.000,-
Lyftugjaldið er innifalið hjá þeim sem greiða æfingagjöld. Þeir sem vilja kaupa árskort tali við Krissa, Stjána eða Kalla.
Byrjendanámskeið hefjast 20. janúar 2004.
Þriðjudagur 06.01.2004 Æfingar í dag verða með óformlegum hætti en reiknað er með hefðbundinni æfingu á fimmtudaginn. Lyftan verður opin skv. stundaskrá.
Foreldravaktin er tilbúin, þeir sem ekki geta sinnt því í vetur eru beðnir um að láta vita sem allra fyrst.
Vegna Ítalíufarar hefjast byrjendanámskeið ekki fyrr en 20. janúar 2004.
Mánudagur 05.01.2004 Af óviðráðanlegum orsökum verða skíðaæfingar með óformlegum hætti a.m.k. næstu daga. Lyftan verður opin skv. stundaskrá.
Foreldravakt er í vinnslu og eru foreldrar sem voru á vakt í fyrra beðnir um að láta vita ef þeir geta ekki sinnt því í vetur.
Vegna Ítalíufarar hefjast byrjendanámskeið ekki fyrr en 20. janúar 2004.
Nýársdagur 01.01.2004 Eins og áður hefur komið fram hefjast æfingar á morgun, föstudaginn 2. janúar 2004. Stundaskráin er eins og í fyrra nema nú eru 1. til 5. bekkur saman og þar af leiðandi 6. til 10. bekkur saman.
Athugið að vegna Ítalíufarar hefjast byrjendanámskeið ekki fyrr en 20. janúar 2004. Í fjarveru Þorvaldar Þorsteinssonar mun Gústav Nilsson sjá um æfingar.
Foreldravakt er ennþá í vinnslu.
Gleðilegt skíðaár!
Mánudagur 29.12.2003 Mánudaginn 29.12.2003 LOKAÐ Þriðjudaginn 30.12.2003 verður opið kl. 17:00 - 19:00. Gamlársdag 31.12.2003 verður opið kl. 13:00 - 16:00. Nýársdag 01.01.2004 verður LOKAÐ.
Æfingar hefjast föstudaginn 2. janúar 2004. Endurskoðuð stundaskrá verður sett inn fyrir áramót sem og foreldravakt.
Sunnudagur 28.12.2003 Mánudaginn 29.12.2003 verður opið kl. 17:00 - 19:00. Þriðjudaginn 30.12.2003 verður opið kl. 17:00 - 19:00. Gamlársdag 31.12.2003 verður opið kl. 13:00 - 16:00. Nýársdag 01.01.2004 verður LOKAÐ.
Æfingar hefjast föstudaginn 2. janúar 2004. Endurskoðuð stundaskrá verður sett inn fyrir áramót sem og foreldravakt.
Annar í jólum 26.12.2003 Laugardaginn 27.12.2003 verður opið á milli kl. 11:00 og 13:00.
Sunnudaginn 28.12.2003 verður opið á milli kl. 13:00 og 16:00.
Aðfangadagur jóla 24.12.2003 Skíðalyftan verður opin á annan dag jóla á milli kl. 13:00 og 16:00.
Gleðileg jól.
Mánudagur 22.12.2003 Nú er loksins kominn nógu mikill snjór til að hægt verði að opna skíðalyftuna. Á Þorláksmessu verður opið á milli kl. 17:00 og 19:00. Nýtroðnar brekkur og engin lyftugjöld fram að áramótum.
Ef veður og færi leyfa verður væntanlega næst opið á annan dag jóla, það verður auglýst nánar hér á síðunni.
Þriðjudagur 02.12.2003 Nú hefur verið sett upp ný vefmyndavél. Fyrst um sinn er mynd frá henni send inn á klukkustundarfresti frá kl. 10 á morgnana til kl. 16 síðdegis.
Sú breyting hefur verið gerð að veðurupplýsingarnar sem birtast hér hægra megin á forsíðunni uppfærast nú á klukkustundarfresti.
Fimmtudagur 13.11.2003 Þá er veðurstöðin komin af stað aftur og skilar sínum veðurupplýsingum á klukkustundarfresti eins og áður var getið.
Hægra megin á forsíðunni birtast hins vegar upplýsingar um veðrið sem uppfærast á fimmtán mínútna fresti. (Því miður virðist ekki hægt að fá vindhraða í m/s.) Ef smellt er á myndina opnast www.wunderground.com.
Miðvikudagur 12.11.2003 Ekki entist hann lengi þessi litli snjór sem kom hér um daginn og spáin lofar ekkert sérstaklega góðu. Það breytir því þó ekki að nú er veðurathugunarstöðin við lyftuna að komast af stað aftur.
Þar sem nettengingin er mun öflugri en í fyrra verða veðurupplýsingar sendar á klukkustundarfresti allan sólarhringinn, a.m.k. til að byrja með. Það virðast reyndar vera einhver smávægileg vandamál í nýrri útgáfu veðurforritsins en það stendur vonandi til bóta.
Hins vegar höfum við ekki lengur vefmyndavélina sem notuð var í fyrra en vonandi verður önnur komin í hennar stað áður en langt um líður.
Sunnudagur 14.09.2003 Athugið breyttan tíma á línuskautaæfingunum 16., 18., 23. og 25. september.
Yngri hópur verður kl. 20:00 - 20:30 en eldri hópur kl. 20:30 - 21:00.
Athugið einnig að æfingar falla niður ef blautt er í veðri.
|